Ég var þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrirlesari á hádegisverðafrundi faghóps um hagnýtingu gagna í síðustu viku.
Tók þar endurhvarf til uppbyggingar Fjármálaeftirlitsins eftir hrun.
Sér í lagi er hollt fyrir stofnanir (og fyrirtæki) að rifja upp þessi markmið upplýsingakerfa úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fjármálahrunið:
„Upplýsingakerfi geta hraðað og bætt ákvarðanatöku og þar með aukið skilvirkni og árangur í starfseminni. Þau eru einnig forsenda þess að viðhalda þekkingu innan stofnunarinnar óháð starfsmannaveltu og tryggja samræmi í ákvarðanatöku.“
Rannsóknarskýrsla Alþingis
Að auki má bæta við að öflug upplýsingakerfi eru forsenda þess geta nýtt gervigreind sem byggir á gögnum fyrirtækisins 🤖
Glærur og efni fundarins má finna hér:
Stafrænir innviðir fyrir hagnýtingu gagna