Okkar markmið er að aðstoða fyrirtæki að hámarka virði úr gögnum og auka skilvirkni í vörustjórnun, verkefnastjórnun, ákvarðanatöku og innleiðingu gervigreindarlausna. Við viljum aðstoða fyrirtæki og stofnanir að verða snjallari með því að hagnýta gögnin sín og nýjustu tækni.

Bjarni Þór Gíslason – Framkvæmdastjóri
Bjarni Þór er leiðtogi með reynslu af því að umbreyta gagnaumhverfi fyrirtækja og auka skilvirkni og ákvarðanatöku með aðstoð gagna.
Hann er fyrrum upplýsingatæknistjóri hjá Fjármálaeftirlitinu og stafrænn leiðtogi Seðlabanka Íslands og hefur reynslu af að byggja upp og styðja við agile verkefnateymi.
Bjarni Þór er með M.Sc. gráðu í gervigreind (e. Informatics) frá University of Edinburgh og B.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.